Skrá inn



Nýr reikningur

týnt lykilorð

Endur stilla lykilorð

Stillingar


Veldu tungumál
  • Svenska
  • Dansk
  • English
  • Norska
  • Íslenska

  • Choose currency
  • SEK
  • DKK
  • NOK*
  • ISK*
  • EUR*
  • MXN*
  • * Prices are displayed in the selected currency but are charged in SEK

    Wacken Open Air

    29 júl - 1 ágú 2026

    UPPLÝSINGAR UM HÁTÍÐARMIÐA OG FERÐAPAKKA Á WACKEN OPEN AIR

    Festivalbussen hefur verið opinber ferðasamstarfsaðili Wacken síðan árið 2001. Þegar þú bókar ferð hjá okkur getur þú verið 100% viss um að miðarnir séu viðurkenndir/official og gildir.

    Við bjóðum upp á nokkra mismunandi valkosti fyrir Wacken. Þú getur valið það sem hentar þér best: Ferð ásamt Wacken hátíðarmiða og tilbúnu tjaldi, eða eingöngu rútuferðina. Þú sníður ferðapakkann að þínum þörfum við bókun. Einfalt er að bóka með því að velja brottfararstað og smella svo á „sýna brottfarir“ (visa avgångar) eða velja tilbúinn pakka sem við bjóðum upp á.

    Tryggðu þér ferð og miða strax í dag, greiðslumátar birtast við bókun. Viðskiptavinir utan Svíþjóðar geta eingöngu keypt ferðapakka með kortagreiðslu.

    WACKEN WORLD METAL CAMP (innifalið ókeypis í ferðapökkunum okkar)

    Við erum með stórt frátekið tjaldsvæði á „Wacken World Metal Camp“. Við munum útvega stórt veislutjald, grill og geggjaða stemningu. Flestir ferðalangar okkar gista með okkur á þessu svæði. Það kostar ekkert aukalega að gista með okkur, það er innifalið í ferðinni þinni.

    Á þriðjudeginum þegar við komum til Wacken höldum við stóra grillveislu fyrir alla skipuleggjendur á Wacken, þar sem metal-DJ-ar verða á svæðinu ásamt öflugu hljóðkerfi. Við sköffum grillin og þið mætið með það sem þið viljið grilla.

    LEIGÐU TJALD AF OKKUR

    Ef þú vilt gera vel við þig geturðu leigt tjald af okkur, eða jafnvel leigt tilbúið tjald sem er þegar uppsett. Við mætum með tjaldið til Wacken og þegar þú kemur á tjaldsvæðið hefurðu samband við okkur á staðnum og við vísum þér í tjaldið þitt (eða afhendum þér leigutjaldið). Þú getur bætt tjaldi við þegar þú bókar ferðina, eða eftir á undir „mínar síður“.

    WACKEN HÁTÍÐARMIÐAR

    Allir hátíðarmiðarnir okkar gilda frá miðvikudegi til laugardags, og gisting á tjaldsvæði frá þriðjudegi til sunnudags. Hátíðarmiðinn er afhentur inn á þinn „Wacken Ticket Center“ aðgang á meðan rútuferðinni stendur á leiðinni til Wacken.

    MISMUNANDI FERÐAVALKOSTIR

    ALL-IN WOA

    Innifelur rútuferð frá völdum brottfararstað.
    Hátíðarmiða frá miðvikudegi til laugardags.
    Útilegubúnað.
    Smelltu á pakkann „ALL IN WOA“.

    SAMSETTUR PAKKI (t.d. með uppsettu tjaldi)

    Innifelur rútuferð frá völdum brottfararstað.
    Til dæmis með hátíðarmiða frá miðvikudegi til laugardags eða með uppsettu tjaldi, tilbúið til innflutnings við komu .Einnig er hægt að bæta við hlutum eins og útilegustól; þú sérð alla valkosti við bókun.
    Smelltu á „sýna brottfarir“ (visa avgångar) til að sérsníða þinn eigin pakka.

    EINGÖNGU RÚTUFERÐ

    Innifelur rútuferð frá völdum brottfararstað.
    Smelltu á „sýna brottfarir“ (visa avgångar) til að velja þinn kost.

    BÓKAÐU FERÐAPAKKANN ÞINN MEÐ MIÐA Á WACKEN

    að er auðvelt að ferðast með Festivalbussen. Þú velur brottfararstað hér að ofan ásamt gerð ferðar. Þú getur valið tilbúið pakkatilboð eða bætt við valkostum handvirkt. Þú velur brottfarartíma með því að smella á afpöntunartryggingu við viðkomandi tímasetningu.

    Festivalbussen er með frátekið svæði á „Wacken World Metal Camp“. Þetta tjaldsvæði er aðeins í nokkur hundruð metra fjarlægð frá inngangi hátíðarinnar. Rúturnar mæta til Wacken síðdegis á þriðjudegi en hátíðin opnar á miðvikudegi. Á þriðjudagskvöldinu er partý á tjaldsvæðinu, sem er frábært tækifæri til að kynnast samferðafólki eða skoða jafnvel hið risastóra tjaldsvæði Wacken.

    VARÐANDI AÐGANGSMIÐA / VALKOSTI

    Ef þú vilt bóka aðgangsmiða á Wacken Open Air er það gert í skrefi 2 í bókunarferlinu. Þú sérð skilmerkilega í körfunni hvað hefur verið valið. Þú þarft sjálf(ur) að velja aukahluti til að bæta þeim við pöntunina. Einnig er hægt að panta aukahluti síðar.

    WACKEN OPEN AIR

    Wacken Open Air er fullkomin hátíð fyrir alla harða rokkara og metalhausa! Á þessari goðsagnakenndu hátíð safnast þúsundir manna saman hvaðanæva úr heiminum til að njóta frábærrar tónlistar, dásamlegrar stemningar og einstakrar upplifunar sem seint gleymist.

    Á Wacken Open Air færðu tækifæri til að sjá nokkur af þekktustu nöfnunum í þungarokki á einum og sama staðnum. Bönd eins og Iron Maiden og Slayer hafa öll komið fram á hátíðinni áður, og má búast við jafn stórum nöfnum í ár.

    En það er ekki bara tónlistin sem gerir Wacken Open Air svo sérstaka. Hátíðin býður einnig upp á einstaka upplifun með fullt af mat, drykk og afþreyingu sem hentar öllum aldri. Þú munt upplifa magnað andrúmsloft, kynnast nýju fólki og skapa minningar fyrir lífstíð.

    Svo ef þú ert metalhaus að leita að fullkominni hátíðarupplifun, þá máttu ekki missa af Wacken Open Air!

    Festivalbussen er opinber samstarfsaðili Wacken Open Air og kaup í gegnum okkur tryggja alltaf ósvikna miða. Vonandi sjáum við þig í rútunni í sumar!